Mark 1

1Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. 2Svo er ritað hjá Jesaja spámanni: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn. 3Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans. 4Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda, 5og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar. 6En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang. 7Hann prédikaði svo: ,,Sá kemur eftir mig, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. 8Ég hef skírt yður með vatni, en hann mun skíra yður með heilögum anda.`` 9Svo bar við á þeim dögum, að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og var skírður af Jóhannesi í Jórdan. 10Um leið og hann sté upp úr vatninu, sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu. 11Og rödd kom af himnum: ,,Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.`` 12Þá knúði andinn hann út í óbyggðina, 13og hann var í óbyggðinni fjörutíu daga, og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra, og englar þjónuðu honum. 14Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum, kom Jesús til Galíleu og prédikaði fagnaðarerindi Guðs 15og sagði: ,,Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagnaðarerindinu.`` 16Jesús var á gangi með Galíleuvatni og sá Símon og Andrés, bróður Símonar, vera að kasta netum í vatnið, en þeir voru fiskimenn. 17Jesús sagði við þá: ,,Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.`` 18Og þegar í stað létu þeir eftir netin og fylgdu honum. 19Hann gekk skammt þaðan og sá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, og voru þeir einnig á báti að búa net. 20Jesús kallaði þá, og þeir yfirgáfu Sebedeus föður sinn hjá daglaunamönnunum í bátnum og fylgdu honum. 21Þeir komu til Kapernaum. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi. 22Undruðust menn mjög kenningu hans, því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur, og ekki eins og fræðimennirnir. 23Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti: 24,,Hvað vilt þú oss, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma oss? Ég veit, hver þú ert, hinn heilagi Guðs.`` 25Jesús hastaði þá á hann og mælti: ,,Þegi þú, og far út af honum.`` 26Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum. 27Sló felmtri á alla, og hver spurði annan: ,,Hvað er þetta? Ný kenning með valdi! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.`` 28Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu. 29Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. 30Tengdamóðir Símonar lá með sótthita, og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. 31Hann gekk þá að, tók í hönd henni og reisti hana á fætur. Sótthitinn fór úr henni, og hún gekk þeim fyrir beina. 32Þegar kvöld var komið og sólin setst, færðu menn til hans alla þá, er sjúkir voru og haldnir illum öndum, 33og allur bærinn var saman kominn við dyrnar. 34Hann læknaði marga, er þjáðust af ýmsum sjúkdómum, og rak út marga illa anda, en illu öndunum bannaði hann að tala, því að þeir vissu hver hann var. 35Og árla, löngu fyrir dögun, fór hann á fætur og gekk út, vék burt á óbyggðan stað og baðst þar fyrir. 36Þeir Símon leituðu hann uppi, 37og þegar þeir fundu hann, sögðu þeir við hann: ,,Allir eru að leita að þér.`` 38Hann sagði við þá: ,,Vér skulum fara annað, í þorpin hér í grennd, svo að ég geti einnig prédikað þar, því að til þess er ég kominn.`` 39Og hann fór og prédikaði í samkundum þeirra í allri Galíleu og rak út illa anda. 40Maður nokkur líkþrár kom til hans, féll á kné og bað hann: ,,Ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.`` 41Og hann kenndi í brjósti um manninn, rétti út höndina, snart hann og mælti: ,,Ég vil, verð þú hreinn!`` 42Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin, og hann varð hreinn. 43Og Jesús lét hann fara, lagði ríkt á við hann 44og sagði: ,,Gæt þess að segja engum neitt, en far þú, sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína því, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.`` 45En maðurinn gekk burt og ræddi margt um þetta og víðfrægði mjög, svo að Jesús gat ekki framar komið opinberlega í neina borg, heldur hafðist við úti á óbyggðum stöðum. En menn komu til hans hvaðanæva.
Copyright information for Icelandic